Þvagfæraráðgjafi – mikilvægur starfsmaður í heilbrigðisþjónustunni
Þvagfæraráðgjöf er sérhæft viðbótarnám fyrir hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara og lækna.
Þvagfæraráðgjafi rannsakar og meðhöndlar jafnt börn sem fullorðna með truflanir á starfsemi neðri hluta þvagfæra svo sem þvagleka eða tæmingarerfiðleika. Rannsóknir sýna að á Norðurlöndum eru 10-15% í öllum aldurshópum með vandamál af þessum toga .
Starf þvagfæraráðgjafa felur í sér að greina vandamálið og skýra sambandið milli orsakar og einkenna.
Þvagfæraráðgjafi rannsakar starfsemi blöðrunar og fylgjr eftir árangri meðferðar
Þvagfæraráðgjafi uppfræðir og leiðbeinir um starfsemi blöðru og þarma og tekur þátt í rannsóknum og þróun í tengslum við þvag- og hægðaleka.
Þvagfæraráðgjafi hefur sérfræðiþekkingu í hjálpartækjum vegna þvag- og hægðaleka og er fær um að senda beiðni til Sjúkratrygginga.
Þvagfæraráðgjafar starfa á Landspítala göngudeild þvagfæra 11A.
Blöðru- og þarmatruflanir
- Áreynsluþvagleki. Þvagleki sem kemur við að hósta, hoppa eða lyfta. Oftast hjá konum.
- Bráðaþvagleki. Bráð þörf á að tæma blöðruna, með eða án þvagleka.
- Blandaður þvagleki. Sambland af einkennum áreynslu- og bráðaleka.
- Starfræn truflun. Truflun á stjórn blöðru.
- Ósjálfráður næturþvagleki í svefni . Algengast hjá börnum.
- Þvagleki vegna truflana á taugaboðum til blöðru. Tæmingarerfiðleikar og eða leki vegna taugaskaða þar sem sjúklingur hefur ekki eðlilega skynjun á þvaglátaþörf.
- Þvagtregða. Erfiðleikar við að tæma blöðru algerlega eða að hluta til.
- Yfirfleki. Þvagleki vegna erfiðleika við að tæma blöðruna.
- Hægðaleki. Getur stafað af ýmsu sem hefur áhrif á hringvöðvann og einnig skertri tilfinningu fyrir hægðaþörf og tæmingarþörf.
Meðferðarúrræði þvagfæraráðgjafa
- Ráðgjöf og kennsla. Fæði og vökvaneysla, salernisvenjur, hreinlæti, fatnaður og fleira sem tengist blöðruvandamálum.
- Blöðruþjálfun bætir stjórn og eykur rúmmál blöðrunnar.
- Grindarbotnsþjálfun styrkir grindarbotnsvöðvana.
- Raförvun örvar taugaboð sem róar taugaviðbrögð til blöðru og grindarbotns.
- Rakaskynjari með bjöllu er hjálpartæki vegna næturvætu.
- Aftöppun er til þess að þeir sem geta ekki haft þvaglát geti tæmt þvagblöðruna sjálfir.
- Víkkun á þvagrás er til að þvag geti runnið óhindrað.
- Leiðbeiningar í salernisvenjum stuðla að eðlilegri tæmingu og þvagheldni.
- Lífræn endurgjöf (BioFeedback) er aðferð til að gera sjúklinginn meðvitaðan um starfsemi líkamans.
-
Þvagfæraráðgjöf
Þvagfæraráðgjöf er fyrst og fremst meðferð sem felur í sér að sjúklingurinn breyti venjum sínum og fái blöðruþjálfun og grindarbotnsþjálfun.
Markmkið
- Þvag- og hægðaheldni.
- Eðlileg eða bætt blöðru- og þarmatæming.
- Einstaklingsmiðuð hjálpartæki.
- Betri líðan og ánægjulegra líf.
-
UTF
UroTerapeutisk Förening er norrænt félag þvagfæraráðgjafa sem var stofnað 1987. Félagið vinnur að menntun, rannsóknum og framförum á sviði þvagfæraráðgjafar. Á mörgum erlendum málum heitir þvagfæraráðgjöf uroterapi. Það orð er samsett úr uro, það sem tengist þvagfærum, og terapi, meðferð.
Þvagfæraráðgjöf er hægt að læra við Háskólann í Gautaborg í Svíþjóð og við Háskólann í Björgvin í Noregi.